Hanna
Við skoðum myndirnar saman.
Ljós, leikur og augnablik fyrir framan og aftan myndavélina.
Sjá myndirnar úr tökunni ↗Persónulegar myndatökur · Reykjavík
Komdu með pælinguna, uppáhaldsfötin eða bara löngunina til að prófa eitthvað nýtt. Við finnum út úr restinni saman.
Skoða pakka og verð Segðu mér frá þinni pælinguEngin reynsla nauðsynleg. Ég leiðbeini þér í gegnum tökuna.

Þú þarft ekki að kunna að pósa, vita hvað þú átt að gera við hendurnar eða mæta með fullmótaða hugmynd. Ég hjálpa þér með það.
Við megum prófa, hlæja og skipta um skoðun. Markmiðið er að þér líði vel og að við búum til myndir sem þig langar að eiga.
Þú mátt mæta
eins og þú ert.
Augnablik úr alvöru sjútum
Svona getur það litið út þegar við prófum okkur áfram. Hér sérðu bæði augnablikin á milli og myndirnar sem verða til.
Hanna
Ljós, leikur og augnablik fyrir framan og aftan myndavélina.
Sjá myndirnar úr tökunni ↗Victoria
Við gefum hugmyndunum pláss til að verða til í tökunni.
Myndirnar sem urðu til sjást í myndbandinu.
Sverrir og Gunnar
Kjólar, náttúra og gleðin í því að prófa eitthvað saman.
Sjá myndirnar úr tökunni ↗Fólkið fyrir framan myndavélina
Mjúkt ljós, sterkir litir eða eitthvað allt annað. Við finnum það sem passar við þig.
Alls kyns fólk, pælingar og augnablik í gegnum tíðina.
Fleiri myndir í gegnum tíðina
Ljósmyndarinn þinn
Ég trúi því að allir myndist vel. Mitt hlutverk er að hjálpa þér að líða vel fyrir framan myndavélina.
Ég er úr Laugardalnum, elska liti, óvenjuleg föt og að kynnast fólki. Í sjútinu finnum við pláss fyrir þinn persónuleika og hugmyndir.
Þú mátt vera spennt, feimin, hugmyndalaus eða allt í bland. Við byrjum þar sem þú ert.
Segðu mér frá þinni hugmyndOrðin þeirra. Myndirnar okkar.
Tappaðu á hliðarnar eða strjúktu til að fletta myndunum.
Ég byrjaði að elska líkamin minn meira eftir að fá að sjá hann í nýju ljósi.Lesa alla umsögnina ↗
Það er mjög þægileg nærvera í stúdíóinu og algjör stemning! Alex peppar mann í drasl og myndirnar alltaf fljótar að koma ❤️ mæli hiklaust með honumLesa alla umsögnina ↗
Það var ekkert smá uppliftandi og gaman að fara til Alex í myndatöku!Lesa alla umsögnina ↗
Frá fyrstu pælingu að fullunnum myndum
Við tökum þetta eitt skref í einu.
Segðu mér hvað þig langar að prófa, eða bara að þig langi í myndatöku. Við finnum tíma, umfang og stemningu saman.
Ég hjálpa þér með stellingar og hreyfingu. Við skoðum myndirnar saman, gefum okkur tíma og sjáum hvað þér finnst skemmtilegt.
Myndaval er yfirleitt tilbúið innan 7 daga. Fullunnar myndir færðu 1 til 2 vikum eftir val. Þrjú 10 × 15 cm prent fylgja portrettpökkunum.
Verð & innifalið
Portrettverð með VSK á virkum degi fyrir kl. 17. Kvöld og helgar: 20% álag á myndatökuna. Förðun, hárgreiðsla, fleiri þátttakendur og rýmisleiga eru verðlögð sérstaklega.
Finndu þitt sjút ↗ Algengar spurningarMyndir til að halda á
Þrjár prentaðar myndir í 10 × 15 cm fylgja öllum portrettpökkum. Þú velur uppáhaldsmyndirnar þínar úr fullunnum myndum tökunnar. Til að eiga, gefa eða koma fyrir heima.


Í fallegu umslagi
3.900 kr.Í fallegu umslagi
5.900 kr.Ein mynd, án ramma
4.900 kr.Viðbótarprent eru af fullunnum myndum sem þú hefur keypt úr tökunni. Verð er með VSK. Rammar fylgja ekki. Afhending er eftir samkomulagi; sendingarkostnaður bætist við ef sent er. Fyrir A3 eða aðrar stærðir, hafðu samband.
Panta prent hjá Alex ↗Gott að vita fyrir myndatökuna
Nei. Ég leiðbeini þér með pósur, tjáningu og hreyfingu allan tímann. Við prófum okkur áfram saman og þú þarft ekki að mæta með þetta allt á hreinu.
Þú mátt koma með fullmótaða pælingu eða bara löngun til að prófa. Ljósmyndakvissið getur hjálpað þér að finna stemningu og við þróum hugmyndina saman.
Prófa ljósmyndakvissiðMini sjút kostar 50.000 kr., Snjókallinn sjút 85.000 kr. og Main Character sjút 130.000 kr. Öll þessi verð eru með VSK og miðast við virkan dag fyrir kl. 17. Kvöld og helgar bera 20% álag á myndatökuna. Fyrirtækjaverkefni fá sérsniðið tilboð.
Sjá verð og hvað er innifaliðJá. Þrjú 10 × 15 cm prent fylgja öllum portrettpökkum, til viðbótar við stafrænu myndirnar. Þú velur úr fullunnum myndum tökunnar. Hægt er að kaupa fleiri prent eða stærri myndir. Afhending prenta er ákveðin eftir myndaval.
Sjá prentverðlistannMyndaval er yfirleitt tilbúið innan 7 daga frá töku. Fullunnar myndir eru afhentar 1 til 2 vikum eftir að þú hefur valið myndirnar.
Við veljum stað sem passar við hugmyndina: í stúdíói, úti eða á stað sem skiptir þig máli. Rýmisleiga, ef hennar er þörf, er staðfest sérstaklega í tilboði.
Já. Þú getur merkt við áhuga á förðun og hárgreiðslu í fyrirspurninni. Það er verðlagt sérstaklega, ásamt fleiri þátttakendum og rýmisleigu. Aukamyndir og myndband frá tökunni má velja í verðreiknivélinni.
Veldu pakka eða sendu stutta fyrirspurn með því hvenær gæti hentað. Ég svara þér persónulega og við finnum tíma og umfang saman. Fyrirspurnin ein og sér staðfestir ekki bókun.
Segðu mér frá sjútinuErtu með aðra spurningu?
Spyrja AlexNæsta skref
Segðu mér aðeins frá þér og því sem þig langar að prófa. Þú þarft ekki að hafa allt ákveðið.
01 / Ljósmyndakvissið
Veldu það sem togar mest í þig. Það eru engin röng svör og þú mátt alveg vera blanda.
Kvissið flokkar ekki persónuleika. Það parar sjónrænar óskir við viðurkennd hugtök í portrettljósmyndun: editorial frásögn, candid augnablik, mjúkt náttúrulegt ljós og flass/stýrða lýsingu. Niðurstaðan er síðan þýdd yfir í Snjókallinn-stíl.
Adobe: editorial · Adobe: portrett · Adobe: golden hour · Canon: candid
02 / Verðreiknivélin
Veldu umfang, tímasetningu og viðbætur. Verðið uppfærist strax.
Myndaval yfirleitt innan 7 daga. Fullunnar myndir 1 til 2 vikum eftir val.
Undirbúningur fyrir tökuna
Þegar þú hefur rætt við Alex um tökuna geturðu sent nánari óskir hér: föt, tónlist, innblástur og hvað hjálpar þér að líða vel.

FRÁ PÆLINGUSagan á bak við myndina / 01
Ég sá það sem Embla var að skapa og langaði að vinna með henni.
Hún er algjör snillingur. Við þróuðum hugmyndina saman. Fyrst kom teikningin og svo myndatakan. Það er einmitt svona samstarf sem mér finnst svo skemmtilegt: að taka pælingu og sjá hvað við getum gert úr henni.
Samstarf við Emblu · Teiknaðu og myndaðu
Myndasöfn