Gefum brandinu þínu andlit.
Tilboð eftir umfangi
Fólkið, vörurnar og litlu hlutirnir sem gera brandið þitt að þínu. Við byggjum myndaseríu utan um það sem þú vilt segja og hvar myndirnar eiga að birtast.
Segðu mér frá þinni pælingu
Myndir fyrir Önnu Marín
Anna Marín vildi nýjar myndir fyrir brandið sitt. Við tókum myndir af henni og bakkelsinu sem hún hafði bakað og enduðum á nokkrum skvísumyndum. Hún kom, sá, SIGRAÐI þetta sjút!
Svona vinnum við saman.
Þín hugmynd
Segðu mér til hvers þú vilt nota myndirnar og hvenær gæti hentað.
Okkar myndataka
Við veljum ljós, föt og stað saman. Ég leiði þig í gegnum pósur og tjáningu.
Myndirnar þínar
Við skilgreinum afhendingu og tímalínu í tilboði.
Nánar um undirbúning og ferlið
Við ræðum tilgang, miðla, myndefni og umfang áður en við tökum myndir. Það hjálpar okkur að velja stað, ljós og útlit sem passa saman. Afhending og tímalína eru skilgreind í tilboði.
Tilboð utan um þína hugmynd.
Fyrirtækjaverkefni fá sérsniðið tilboð. Verðið fer eftir umfangi og notkun, með skýrri afhendingu og tímalínu.
Gott að vita
Þarf ég að kunna að pósa?
Nei. Ég hjálpa þér með pósur, svipbrigði og stemningu allan tímann.
Hvað á ég að vera í?
Við ræðum föt og bakgrunn fyrir myndatökuna. Sendu mér hugmyndir eða innblástur með fyrirspurninni.
Hvenær er tíminn staðfestur?
Þegar við höfum rætt dagsetningu, umfang og verð og staðfest þau saman. Móttökupósturinn staðfestir að fyrirspurnin hafi borist.