snjókallinn.

Headshots með karakter.

Frá 50.000 kr. með VSK

Nýtt andlit á prófílinn, leikarasafnið eða vefinn? Við vinnum með svipbrigði, ljós og stellingar til að búa til myndir sem segja eitthvað um þig.

Segðu mér frá þinni pælingu
Headshot af Róberti eftir Snjókallinn

Róbert og Óðinn

Róbert kom í headshot-töku. Við bjuggum til eitthvað rosalegt saman! Óðinn kom líka í töku og útkoman var ICONIC.

Svona vinnum við saman.

  1. Þín hugmynd

    Segðu mér til hvers þú vilt nota myndirnar og hvenær gæti hentað.

  2. Okkar myndataka

    Við veljum ljós, föt og stað saman. Ég leiði þig í gegnum pósur og tjáningu.

  3. Myndirnar þínar

    Þú velur myndirnar í netgalleríi og ég fullvinn þær.

Nánar um undirbúning og ferlið

Segðu mér hvar myndirnar verða notaðar og hvaða stemningu þú vilt. Við veljum bakgrunn, föt og ljós út frá því. Þú færð leiðsögn allan tímann og við gefum svipbrigðunum pláss.

Myndaval er yfirleitt tilbúið innan 7 daga. Fullunnar myndir eru afhentar 1 til 2 vikum eftir að þú hefur valið myndirnar.

Verð og innifalið.

Quick

Bara aðeins meira ég 💌

50.000 kr.

30 mínútur · 3 fullunnar myndir

Hvað er innifalið?
  • 3 prentaðar myndir · 10 × 15 cm
  • Ein staðsetning
  • Leiðsögn í pósum og tjáningu
  • Netgallerí til að velja úr
Spyrja um Bara aðeins meira ég 💌

Klassísk

Hver er þessi skvísa? 🫣

85.000 kr.

60 til 75 mínútur · 10 fullunnar myndir

Hvað er innifalið?
  • 3 prentaðar myndir · 10 × 15 cm
  • Ein staðsetning
  • 1 til 2 look eða fataskipti
  • Hugmyndavinna fyrir töku
  • Leiðsögn allan tímann
  • Netgallerí til að velja úr
Spyrja um Hver er þessi skvísa? 🫣

Allt inn

Allt of mikið, ALDREI! 💅

130.000 kr.

1,5 til 2 klukkustundir · 20 fullunnar myndir

Hvað er innifalið?
  • 3 prentaðar myndir · 10 × 15 cm
  • 1 til 2 nálægar staðsetningar
  • 2 til 3 look eða fataskipti
  • Hugmyndavinna og moodboard
  • Leiðsögn allan tímann
  • Netgallerí til að velja úr
Spyrja um Allt of mikið, ALDREI! 💅

Verð með VSK á virkum degi fyrir kl. 17. Kvöld og helgar: 20% álag á myndatökuna. Förðun, hárgreiðsla, fleiri þátttakendur og rýmisleiga eru verðlögð sérstaklega.

Gott að vita

Þarf ég að kunna að pósa?

Nei. Ég hjálpa þér með pósur, svipbrigði og stemningu allan tímann.

Hvað á ég að vera í?

Við ræðum föt og bakgrunn fyrir myndatökuna. Sendu mér hugmyndir eða innblástur með fyrirspurninni.

Hvenær er tíminn staðfestur?

Þegar við höfum rætt dagsetningu, umfang og verð og staðfest þau saman. Móttökupósturinn staðfestir að fyrirspurnin hafi borist.

Senda fyrirspurn