snjókallinn.
Svarthvítt portrett af ömmu Alex
Sagan á bak við verkefnið

Af hverju Amma?

Fyrir ömmu mína

Myndirnar sem ég vildi að ég gæti gefið henni.

Amma mín elskaði að fá myndir af okkur fjölskyldunni í jólagjöf. Ég missti hana í júní og ég sé alltaf eftir því að hafa ekki fengið hana sjálfa í sjút.

Myndir fyrir Ömmu varð til úr þeirri tilfinningu. Mig langar að taka myndirnar sem ég myndi vilja senda ömmu í ár. Myndir sem eru fallegar, hlýjar og smá skemmtilegar. Myndir sem fara ekki bara í símann heldur verða prentaðar, pakkaðar inn og gefnar einhverjum sem kann virkilega að meta þær.

Þetta má vera mynd af allri fjölskyldunni, systkinunum, þér og makanum, vinahópnum eða bara þér. Gjöfin er myndin, en líka augnablikið sem hún varð til úr.

Alex Snær 🤍

Amma með kött í fanginu
Amma með fjölskyldunni á 95 ára afmæli
Alex sem barn með ömmu og afa við eldhúsborðið
Amma með barn í fanginu
Polaroid-mynd af ömmu og fjölskyldu
„Mig langar að taka myndirnar sem ég myndi vilja senda ömmu í ár.“

Ekki bíða eftir fullkomna augnablikinu. Myndin þarf ekki að vera formleg til að verða ómetanleg.

Óska eftir tíma