Hvað er innifalið?
10 mínútna myndataka, leiðsögn, þrjár fullunnar stafrænar myndir í einkagalleríi og eitt 10×15 cm prent á staðnum.
Hvernig bóka ég tíma?
Veldu lausan tíma á bókunarsíðunni og skráðu nafn, símanúmer, netfang og kennitölu. Þegar þú staðfestir bókunina er tíminn þinn, óháð greiðslu. Greiðsluleiðbeiningar birtast strax eftir bókun. Þú getur millifært, notað Aur eða sent SMS til Alex í 8930067 og óskað eftir greiðslu á staðnum. Ef þú mætir ekki verður fullt myndatökugjald, 15.000 kr., innheimt í heimabanka.
Bóka tímaHvað tekur heimsóknin langan tíma?
Myndatakan tekur 10 mínútur. Með myndavali og prentun er gott að reikna með um 30 til 40 mínútum í heild.
Hversu margir mega vera á myndinni?
Komið eins mörg og þið viljið. Ef hópurinn er óvenju stór skaltu hafa samband við Alex fyrst svo hægt sé að tryggja að uppsetningin henti.
Hvað ef ég mæti of seint?
Það er mikilvægt að mæta tímanlega. Ef næsti tími er laus getur Gui reynt að finna annað bil. Ef ekkert laust bil hentar fellur tíminn niður og greiðslan telst sem forfallagjald.
Get ég fært eða afbókað tímann?
Ef tvær vikur eða meira eru í viðburðinn geturðu fengið endurgreitt. Eftir það geturðu fengið inneign sem gildir í 12 mánuði á annað pop-up hjá Snjókallinum, svo lengi sem þú færir eða afbókar að minnsta kosti 48 tímum fyrir viðburð.
Má ég koma í öðruvísi fötum eða með hugmynd?
Auðvitað. Frjáls útfærsla. Við reynum að framkvæma hugmyndina þína innan tímans og uppsetningarinnar.
Þarf ég að kunna að pósa?
Nei. Alex hjálpar þér með pósur og leiðir þig í gegnum tökuna.
Hvenær fæ ég myndirnar?
Valdar fullunnar myndir og einkagallerí berast sama dag eða daginn eftir pop-upið, í síðasta lagi innan 24 tíma.
Get ég keypt fleiri myndir?
Já. Þú færð að minnsta kosti 50 myndir í val-galleríi. Þar geturðu keypt stakar unnar myndir, myndapakka eða allt galleríið. Verð birtast skýrt inni í galleríinu.
Get ég keypt fleiri prent?
Já. Auka prent má kaupa á staðnum. Eftir töku er líka hægt að panta fleiri prent með tökunúmeri, staðsetningu og dagsetningu. Þau má sækja eða fá send gegn sendingargjaldi og afhending tekur að hámarki tvær vikur.
Hvað ef prentarinn klikkar?
Við höfum samband og þú velur hvort þú sækir prentið eða færð það sent án aukagjalds. Það verður tilbúið í síðasta lagi innan tveggja vikna.
Er myndunum mikið breytt?
Nei. Myndirnar fá fallega og samræmda litvinnslu. Alex breytir engu við þig nema mögulega áberandi tímabundinni bólu.
Má koma með dýr?
Ef staðsetningin leyfir það. Hafðu samband áður til að vera viss.
Hvað ef viðburðinum er aflýst eða dagsetningu breytt?
Ef viðburðinum er aflýst færðu endurgreitt. Ef dagsetningunni er breytt geturðu valið endurgreiðslu eða flutt tímann yfir á nýju dagsetninguna.
Er hægt að kaupa gjafabréf?
Já, hægt verður að kaupa gjafabréf í aðrar myndatökur hjá Snjókallinum á staðnum. Ekki verða gefin út sérstök gjafabréf í pop-upið.